Fyrsta færslan - woop woop ! *
Sæl veriði, ég heiti KatrínÞöll og þetta er fyrsta færsla meistaramánaðrinns míns. Vissulega ættu allir mánuðir að vera meistaramánuðir en þetta er allavega góður staður til að byrja. Ég rakst í rauninni bara á fréttina af þessari skemmtilegu áskorun þegar ég var að lesa skopmyndasögurnar í fréttablaðinu sem og svo oft áður, og datt í hug að þetta gæti allavega orðið áhugavert að reyna að komast í gegnum einn mánuð og án þess að slá hlutunum á frest, sofa yfir sig eða… þið skiljið hvað ég er að fara.
Fyrsta markmiðið mitt þennan mánuðinn snýr einmitt að svefni. Í þeim málum er ég þessi týpíska íslenska B típa þarf að fá morgunkaffið beint í æð í morgunnsárið til að sjá fram yfir nefið á sér og finnst engin uppfinning dásamlegri en “snooze” takkinn á bláum mánudegi. Þennan mánuðinn hinsvegar ætla ég að reyna að fara fyrr í rúmið og vakna fyrr á morgnanna – byrja daginn fyrr í rólegheitunum.
//1.fyrr að sofa -> vakna fyrr -> hress.//
Svo þegar ég er kominn í þann gír að mæta eldhress í fyrsta tíma þá verður maður að sjálfsögðu að mastera skólann líka ekki satt ? Eftir að hafa lært latínu & heimsspeki á tungumáli sem þú kunnir ekkert í heilt ár þá ætti Íslenska 402 að vera leikur einn ef ég kem mér einfaldlega í það að lesa heima þó að það sé mikið að gera. Næsta markmið er því að klára heimanámið alltaf jafnóðum.
Þó að það sé nú alveg nóg að gera hjá mér þessa daganna þá er ég engu að síður búin að vera heldur treg í því að demba mér í alla gömlu hlutina sem ég var í áður en ég fór út s.s. dans, leikfélagið. Stundum verður maður einfaldlega að fá að dilla rassinum aðeins við Zumba eða Salsa tónlist – svo að næstu misseri ætla ég að rækta áhugamálin mín vel; dansa, syngja, ferðast, spila, leika, fara á tónleika, kaffihús, djamma, fíflast og gera bara eitthvað sem að mér finnst skemmtilegt á hverjum einasta degi.
//3. áhugamálin -> gera eitthvað nýtt & spennandi á hverjum degi//
Næsta markmið er fengið að láni en sumt er einfaldlega ekki sagt nógu oft ; “ Hugmynd að meistaraáskorun #8: Ræktaðu vináttuna og hittu félagana oftar. Maður er manns gaman, og saman getum við afrekað miklu meira í Meistaramánuðinum”. Basic.
Ég get verið agalega með það að fylla skrifborðsstólinn eða rúmmið mitt af fötum þegar mikið gengur á. Eina stundina er allt í himan lagin en þá næstu virðist sem að fataskápurinn hafi gubbað öllu töskusafninu, fötunum mínum & heimanámi vikunnar víðsvegar um herbergið. Næstu 30 dagana mun þetta hinsvegar heyra sögunni til, fötin fara beint inn í skáp á kvöldin & blöðin í möppur.
Ég ætla reyndar ekki í neina sérstaka megrun í þessu átaki þar sem að múslí verður seint talinn einn helsti offituvaldur í heiminum. Hinsvegar væri ekki vitlaust að hugsa aðeins um það að borða hluti sem að gera mann ennþá hressari & hreyfa sig ennþá meira. Skipta jafnvel einstaka kaffibolla út fyrir te – svo maður endi nú ekki uppi með magasár & deyji eins og Magga líffræðikennari myndi orða þetta…
Þetta eru s.s. aðalmarkmiðin en eflaust eiga önnur minni eftir að týnast hérna inn næstu dagana. Það að blogga í 30 daga er í raun ákveðin áskorun út af fyrir sig en auðvitað viss útrás fyrir endalausa tjáningarþörf… ;)
Þangað til næst,
- KatrínÞöll*





